Ég rakst á ansi skemmtilega hugmynd af svipuðum toga á vafri mínu um netheima, gæti alveg hugsað mér að útfæra hana fyrir næstu jól. Hún er þannig að útbúið er lítið hefti með samverustundum eða hugmyndum að öðru skemmtilegu á aðventunni. Þetta þarf ekki endilega að vera bundið við desember mánuð, heldur hægt að gera hvenær sem er og gefa til dæmis krökkunum sínum. Hérna er tengill á þessa skemmtilegu hugmynd.
mánudagur, 22. desember 2014
Samverustundir fjölskyldunnar í desember
Fyrir nokkrum árum síðan saumaði móðir mín út fallegt jóladagatal með snjókarli og jólasveini, dagatalið er líklega 1.5 meter á lengdi. Í það hef ég hengt miða núna í desember með skemmtilegum samverustundum fjölskyldunnar. Það er auðvelt að gleyma sér í jólaundirbúningnum og jólastressinu en gleyma því sem mestu skiptir að gera eitthvað skemmtilegt saman. Krökkunum hefur fundist þetta ansi skemmtilegt og þessi hefð sér til þess að í desember gerum við alltaf eitthvað skemmtilegt saman. Það þarf ekki að vera mikið og flókið, höfum til dæmis farið á skauta saman, pakkað inn jólagjöfum saman, verið með pizzukvöld við kertaljós, skroppið í jólaljósabíltúr og fleira í þeim dúr.
Ég rakst á ansi skemmtilega hugmynd af svipuðum toga á vafri mínu um netheima, gæti alveg hugsað mér að útfæra hana fyrir næstu jól. Hún er þannig að útbúið er lítið hefti með samverustundum eða hugmyndum að öðru skemmtilegu á aðventunni. Þetta þarf ekki endilega að vera bundið við desember mánuð, heldur hægt að gera hvenær sem er og gefa til dæmis krökkunum sínum. Hérna er tengill á þessa skemmtilegu hugmynd.
Ég rakst á ansi skemmtilega hugmynd af svipuðum toga á vafri mínu um netheima, gæti alveg hugsað mér að útfæra hana fyrir næstu jól. Hún er þannig að útbúið er lítið hefti með samverustundum eða hugmyndum að öðru skemmtilegu á aðventunni. Þetta þarf ekki endilega að vera bundið við desember mánuð, heldur hægt að gera hvenær sem er og gefa til dæmis krökkunum sínum. Hérna er tengill á þessa skemmtilegu hugmynd.
Efnisorð:
Jól
,
Samverustundir
,
Skipulag
Gerast áskrifandi að:
Færslur
(
Atom
)